Þingmaður ræðst gegn æru manna

Í alþingisræðu sinni þann 25. mars ákvað Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingar, að nota ræðutíma sinn í ósannar aðdróttanir í garð undirritaðra. Sakaði viðkomandi þingmaður undirritaða um fordóma í garð samkynhneygðra og gerði undirritaða að tákngerfingum hommahaturs.

Segir í 236. gr. almennra hegningarlaga að ,,sé ærumeiðandi aðdróttun höfð í frammi eða borin út gegn betri vitund, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum."

Undirritaðir hafa fengið lagalega aðstoð í málinu og hefur kvörtun verið send fyrir hönd undirritaðra til forseta Alþingis, umboðsmanns Alþingis og alþingismanna. Í kvörtun þeirri er lögð fram krafa um afsökunarbeiðni af hálfu þingmannsins sem og að forseti Alþingis ávíti viðkomandi þingmann.

Einnig er það skýlausa krafa, á grundvelli 2. mgr. 49.  gr. stjórnarskrárinnar, að Alþingi gefi leyfi á að viðkomandi þingmaður verði krafinn reikningsskapar á orðum sínum.

Við undirritaðir krefjumst þess af hálfu Steinunnar að hún biðjist opinberlega afsökunar á orðum sínum og leiðrétti ósannindi sín. Ella metum við réttarstöðu okkar og grundvöll fyrir málsókn.

 

Reykjavík 26. mars 2010

 

Ólafur Hannesson (sign.)

Viðar Guðjohnsen (sign.)


---

Meðfylgjandi er kvörtun sem send var til forseta Alþingis, umboðsmanns Alþingis og alþingismanna 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra meðal annars spurð út í þetta í kvöld á ÍNN kl 21:30

Ragna Árnadóttir verður gestur okkar í þættinum Óli á Hrauni í kvöld kl 21:30 í opinni dagskrá á sjónvarpstöðinni ÍNN, eða á www.inntv.is

Þar verður hún meðal annars spurð útí rafbyssur, rafrænt eftirlit, fangelsismál og margt fleira.


mbl.is Ráðherrar fyrir dóm?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra verður gestur okkar í næsta þætti

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra kemur til okkar í þáttinn Óli á Hrauni. þátturinn verður sýndur miðvikudagskvöldið 18. nóvember kl: 21.30.

Þátturinn er sýndur á sjóvarpstöðinni ÍNN, einnig verður hægt að sjá þáttinn á www.inntv.is allt í opinni dagskrá.


Óli á Hrauni

Þátturinn fór fyrst í loftið 28 mars 2008. í þáttinn hafa komið hinir ýmsu gestir svo sem þingmenn, ráðherrar, leikstjórar og hinn almenni borgari.

Þættinum er stjórnað af Ólafi Hannessyni sem hefur stýrt honum frá byrjun. Viðar Helgi Guðjohnsen bættist svo við sem co-host 23. september 2009.

þættirnir eru sýndir á sjónvarpstöðinni ÍNN sem er í opinni dagskrá.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband